
Vítamín
Háls, nef og eyru
ICEHERBS Hálsmixtúra Með Hunangi & Pipar 200ml
Fjallagrasa hálsmixtúra með hunangi og piparmyntu hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Virkni sína sækir mixtúran í fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar. Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran hunang og piparmyntu sem eru þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
1.798 kr.
Vöruupplýsingar
Fjallagrasa mixtúrurnar eru góð vörn gegn hósta og hvers konar óþægindum í hálsi, því þær innihalda fjallagrös sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi. Fjallagrasa hálsmixtúrur höfða til allra en þær eru sérstaklega góðar fyrir þá sem reyna mikið á röddina, t.d. söngvara, ræðumenn og kennara. Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningarmáttur þeirra eigi við rök að styðjast. Fjallagrasa hálsmixtúra með lakkrísbragði er án alkóhóls og hentar börnum frá eins árs aldri.
Notkun
Hristist fyrir notkun Notist 3 -5 sinnum á dag Fullorðnir: 1 matskeið (10 ml) Börn eldri en 1 árs: 1 teskeið (5 ml)
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Kavita ehf
Innihaldslýsing
Maltitólsýróp, hunang, vatn, fjallagrasaþykkni, pektín gum arabicum blanda og piparmynta.