
Vítamín
Barnavítamín
ICEHERBS Krakkamixtúra Appelsínubragð 200ml
Fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Virkni sína sækir mixtúran í fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar. Fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði er án alkóhóls og hentar því börnum frá eins árs aldri, enda höfðar súkkulaðibragðið vel til barna.
1.798 kr.
Vöruupplýsingar
Þessi bragðgóða fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Virkni sína sækir mixtúran í fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar. Fjallagrasa krakkamixtúra með jarðaberjabragði er án alkóhóls og hentar því börnum frá eins árs aldri, enda höfðar appelsínubragðið vel til barna. Fjallagrasa hálsmixtúrur hafa mýkjandi áhrif og eru góð vörn gegn hósta, særindum og hvers konar óþægindum í hálsi, vegna fjallagrasanna sem þau innihalda en þau hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi. Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.
Notkun
Hristist fyrir notkun Notist 3 -5 sinnum á dag Börn eldri en 1 árs: 1 teskeið (5 ml)
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Kavita ehf
Innihaldslýsing
Vatn, maltitólsýróp, glúkósasýróp, fjallagrasaþykkni, appelsínuþykkni og pektín.