Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Háls, nef og eyru

ICEHERBS Fjallagrasa Brjóstdropar 200ml

Fjallagrasa Íslenskir brjóstdropar vinna gegn særindum í hálsi.  Hálsmixtúran inniheldur fjölsykrur sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar. Fjallagrasa brjóstdropar innihalda mjög hátt hlutfall af fjallagrösum sem tryggir mikla virkni þeirra eins og í öðrum fjallagrasa hálsmixtúrunum. Fjallagrös innihalda leysanlegar trefjar, lichenin, isolichenin og fléttusýrur sem mýkja slímhúð í hálsi.  Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran mentól og lakkrís sem eru þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.

1.798 kr.

Vöruupplýsingar

Fjallagrasa íslenskir brjóstdropar innihalda alkóhól og henta því ekki börnum.Fjallagrasamixtúrnar eru góð vörn gegn hósta og hvers konar óþægindum í hálsi, því mixtúrurnar innihalda fjallagrös sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi. Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

Notkun

Hristist fyrir notkun Notist 3 -5 sinnum á dag Fullorðnir: 1 matskeið (10 ml) Ekki ætlað börnum

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Kavita ehf

Innihaldslýsing

Vatn, maltitólsýróp, fjallagrasaþykkni, etanól, salmíak, lakkrískjarni og mentól.