Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Andoxunarefni

ICEHERBS Andoxun 60stk

ANDOXUN ER VATNSLOSANDI OG JÁRNRÍK OFURBLANDA MEÐ ÍSLENSKUM KRÆKIBERJUM OG RAUÐRÓFUM

2.498 kr.

Vöruupplýsingar

Andoxun er sannkölluð ofurfæðublanda. Hún inniheldur íslensk krækiber og rauðrófuduft. Blandan er einstaklega járnrík og hefur hátt hlutfall af andoxunarefnum. Hún er frábær fyrir meltinguna og bætir súrefnisupptöku.

Krækiber eru þekkt fyrir vatnslosandi áhrif og eru rík af E og C vítamínum, þau hafa mjög hátt innihald andoxunarefna, eins og flavonol og anthocyanin. Neysla krækiberja er talin hafa jákvæð áhrif á taugakerfið, heilastarfssemi og sjón. Rauðrófur eru þekktar fyrir að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæði og hafa því slegið í gegn meðal íþróttafólks þar sem með auknu blóðflæði eykst snerpa, orka og úthald. Rauðrófurnar eru einstaklega næringaríkar. Þær innihalda C vítamín, kalíum og önnur nauðsynleg steinefni sem styrkja ónæmiskerfið. Þær styðja einnig við afeitrunarferli lifrar og eru einstaklega járnríkar.

Notkun

Takið 2 hylki á dag með vatni

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Kavita ehf

Innihaldslýsing

Varan inniheldur 60 hylki. Hvert hylki inniheldur:  Krækiber 380 mg. Rauðrófuduft 100 mg. Engin aukaefni Hylkin eru úr jurtabeðmi (vegan).