
Vítamín
Detox
Eylíf Stronger Liver 90stk
Innihaldsefnin eru kítósan sem bindur fituefni í meltingavegi, ætihvönn sem hefur verið notuð frá örófi alda við meltingatruflunum, kísil og kalkþörunga úr hafinu sem innihalda 74 stein- og snefilefni frá náttúrunnar hendi og við styrkjum blönduna með C vítamíni, kólín og mjólkurþistli sem eru þekkt fyrir að hafa góð áhrif á meltinguna og starfsemi lifrar.
4.598 kr.
Vöruupplýsingar
Stronger LIVER inniheldur uppbyggjand næringarefni frá sjálfbærum auðlindum til sjávar og sveita. Innihaldsefnin eru kítósan sem bindur fituefni í meltingavegi, ætihvönn sem hefur verið notuð frá örófi alda við meltingatruflunum, kísil og kalkþörunga úr hafinu sem innihalda 74 stein- og snefilefni frá náttúrunnar hendi og við styrkjum blönduna með C vítamíni, kólín og mjólkurþistli sem eru þekkt fyrir að hafa góð áhrif á meltinguna og starfsemi lifrar.
Það er fátt jafn mikilvægt eins og að halda meltingunni í góðu lagi því hún spilar lykilhlutverki í andlegri og líkamlegri heilsu. Lifrin er stærsti kirtill líkamans og gegnir ótal mikilvægum hlutverkum í efnaskiptum. Lifrin er aðal líffærið sem stýrir efnaskiptum. Lífstíll getur haft áhrif á starfsemi og efnaskipti lifrar ss. mikil alkóhólneysla, óhollur matur ss. djúpsteiktur, sykruð- og unnin matvæli.
Góð og heilbrigð melting hefur áhrif á þarmaflóruna sem þróast með okkur í gegnum lífið og verður fyrir áhrifum frá umhverfi okkar. Það má því segja að hún sé eins og eitt stórt líffæri. Engin þarmaflóra er eins og önnur en hlutverk hennar er alltaf það sama; að viðhalda heilbrigði þarmanna og verja líkamann fyrir óvelkomnum örverum. Heilbrigð melting er grunnurinn að góðri heilsu.
Notkun
Best er að taka tvö hylki á dag með mat til að viðhalda heilbrigðum meltingarvegi. Við mælum með því að taka bæði hylkin á sama tíma svo að ekki gleymist að taka seinni skammtinn.
Mælt er með að taka ekki D vítamín á sama tíma, gott að láta líða 1-2 klst á milli
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Artasan
Innihaldslýsing
Stronger LIVER inniheldur fjögur grunnefni frá móður íslenskrar náttúru: Kítósan, (ensím úr rækjuskel, LipoSan Ultra TM) sem binda fitu í meltingarvegi þannig að hún fari ekki út í blóðrásina og hjálpar þannig til við að halda kjörþyngd. Rannsóknir sýna að Kítósan (ensím úr rækjuskel) halda Candida sveppnum í skefjum í þarmaflórunni ásamt því að vera næring fyrir gerlaflóruna í þörmum. Kítósan hentar ekki fyrir þá sem hafa ofnæmi fyrir skelfiski. Kalkþörunga (Calcified seaweed), hinn náttúrulegia kalk- og steinefnagjafa úr hafinu með um 74 stein– og snefilefnum sem vernda beinin og styrkja bandvef og er ætlað öllum sem ekki fá nægilegt kalk og steinefni úr fæðunni. Kísil frá GeoSilica, náttúrulegt steinefni sem gegnir lykilhlutverki í myndun og viðhaldi beina og bandvefs. Íslenska ætihvannarót sem hefur verið í matarmenningu Íslendinga frá örófi alda og er talið hafa góð og styrkjandi áhrif á meltinguna. Mjólkurþistill hefur verið notað í gegnum aldirnar sem lækningajurt og er talin styrkja starfsemi lifrar. Kólín hefur góð áhrif á starfsemi lifrar og er viðurkennt efni af EFSA (Evrópsku matvælaöryggis stofnuninni). Samþykktar fullyrðingar frá EFSA er: Kólín stuðlar að eðlilegum fituefnaskiptum. Kólín stuðlar að viðhaldi eðlilegarar starfsemi lifrar. Kólín stuðlar að eðlilegum efnaskiptum að því er varðar hómósystem (hómósystem er áhættuþáttur æðarsjúkdóma). Við styrkjum blönduna með C vítamíni, það hefur verið sýnt fram á góð áhrif á meltinguna. Til að auka á heilbrigði lifrar og meltingar er Stronger LIVER góð viðbót við daglega fæðuinntöku.