Hoppa yfir valmynd
Vítamín

B-vítamín

NOW B12 Ultra Fljótandi 118ml

Now Ultra Liquid 118ml

3.498 kr.

Vöruupplýsingar

B12-vítamínvökvi sem inniheldur þrjár gerðir af B12-vítamíni; cyanacobalamin, methylcobalamin og dibencozide, auk fólínsýru. B12 er mikilvægt vítamín, sérstaklega fyrir þá sem takmarka neyslu dýraafurða, t.d. vegan og grænmetisætur. B12-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri starfsemi taugakerfisins, eðlilegri sálfræðilegri starfsemi, eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. B12-vítamín stuðlar einnig að því að draga úr þreytu. Bragðgott og sykurlaust, sætt með xylitol og stevíu. Vegan. 118 ml.

Notkun

Takið 1 teskeið að morgni með mat. Geymist í munni í 30 sek. áður en vökvanum er kyngt. Hristist vel fyrir notkun. Geymist í kæli eftir opnun.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Icepharma ehf