
Vöruupplýsingar
B12 er mikilvægt vítamín, sérstaklega fyrir þá sem takmarka neyslu dýraafurða, t.d. vegan og grænmetisætur. B12-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri starfsemi taugakerfisins, eðlilegri sálfræðilegri starfsemi, eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. B12-vítamín stuðlar einnig að því að draga úr þreytu. Vegan. 100 stk.
Notkun
1 munnsogstafla 1 sinni á dag með mat. Töflurnar skal tyggja, sjúga eða láta renna í munni og síðan kyngja. Geymist á köldum og þurrum stað eftir opnun.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Icepharma ehf