
Vöruupplýsingar
Floravital er notað til meðhöndlunar á blóðleysi af völdum járnskorts. Blandan fer vel í magann og inniheldur járn á auðupptakanlegu formi auk C og B vítamína sem auðvelda upptöku og nýtingu þess. Járnskortur er algengasta orsök blóðleysis sem lýsir sér oft í þreytu og orkuleysi. Auk þess að vera laus við ger og glúten er blandan einnig laus við laktósa, aukaefni, rotvarnarefni og áfengi. Vegan.
Notkun
3-5 ára: 5ml á dag 6-12 ára: 10ml á dag 12 ára og eldri: 10 ml tvisvar á dag
Best er að taka blönduna á fastandi maga til að tryggja hámarks nýtingu. Annað hvort 30 mínútum fyrir máltíð eða 2klst eftir máltíð. Forðist að taka járn með kaffi, te að mjólk vegna þess að það getur dregið úr upptöku járns. Gott er að taka járn með C vítamínríkri fæðu því C vítamín eykur upptöku, t.d. gott að blanda út í appelsínusafa eða rauðrófusafa.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til. Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf
Innihaldslýsing
Jurtaextrakt (70%): Hibiscus (hibiscus sabdariffa), kamilla (matricaria recutita), fennel (foeniculum vulgare), spínat (spinacia oleracea). Ávaxtasafaþykkni (27%): Vínber, perur, vatn, sólberjasafi, kirsuber, brómber, gulrætur. Járn (sem ferrous gluconate), rósaberja extrakt (rosa canina) með 4% C vítamín innihald, C vítamín (ascorbic acid), B6 vítamín (pyridoxine HCl), B2 vítamín (riboflavin sodium phosphate), B1 vítamín (thiamine HCl), B12 vítamín (cyanocobalamin).
Ábyrgðaraðili: Heilsa hf.