Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Hár-húð og naglavítamín

Evonia Aukinn Hárvöxtur 56stk

Stuðlar að auknum hárvexti með því að færa hárrótunum styrk til vaxtar

5.898 kr.

Vöruupplýsingar

Evonia inniheldur réttu næringarefnin í réttum hlutföllum fyrir hársræturnar og vöxt hársins. Evonia-hylkin stuðla að öflugu blóðflæði sem færir hársrótunum næringu, eflir vöxt hársins og formgerð og kemur í veg fyrir hárlos og virkjar framleiðslu hárfruma. ” Það þarf fjölbreytt næringarefni til að framleiða gæðahárfrumur og mynda sterkbyggt hár. Evonia fæðubótarefnið hefur verið þróað með þetta í huga í samstarfi sérfræðinga finnsku hárakademíunnar. Evonia inniheldur akurdoðru, hörfræ og smárafræjaolíu í réttum hlutföllum til að ná besta fáanlega hlutfalli ómega-3 og ómega-6 í hlutföllunum 2: 1. Evonia inniheldur einnig D og E vítamín, sink og metíónín. Öll eru þessi snefilefni nauðsynleg til að færa hársrótunum næringu og að mynda sterkbyggt og endingargott hár. Evonia inniheldur vandlega valin næringarefni fyrir vöxt og viðgang hársins.

Lífeðlisfræðileg áhrif • Evonia bætiefnið fyrir hárvöxt var þróað í samstarfi við sérfræðinga frá Hárakademíu Finnlands. Það inniheldur nauðsynleg íðefni svo hárið vaxi sterkt og hraust og eigi sér langan lífaldur. • Evonia-hylkin stuðla að góðu blóðflæði sem færir hársrótunum næringu, eflir vöxt og formgerð hársins og kemur í veg fyrir hárlos og að hárið gráni. • Besta uppspretta ómega-3 (alfalínólsýru) í jurtaríkinu er hör (Linum usitatissimum) and og akurdoðra (Camelina sativa). Evonia inniheldur svo auk þessara tveggja gerða af jurtaolíu grikkjasmárafræjaolíu (Trigonella foenum graecum L.). Þannig fæst hárrétt hlutfall á milli ómega-3 og ómega 6 (2:1). • Þíamín er mikilvægt hjálparensím við til dæmis kolvetnaefnaskipti. Kolvetnin binda prótín í hárinu. • Ríbóflavín er eitt helsta íðefnið í tveimur flavín hjálparensímum en virkni þeirra er mikilvæg fyrir súrefnisnotkun og orku líkamans en einnig fyrir prótín- og fitusýrumyndunina. • Nikotínamíð styrkir við blóðflæði í hársverði. • Pantóþensýra er mjög mikilvægur þáttur í því að koma í veg fyrir hárlos og að hárið gráni. • B6 vítamín hindrar hárlos og á þátt í framleiðslunni á melaníni sem ræður háralitnum. • B6 vítamín hindrar það einnig ásamt paraamínóbensósýrunni (PABA) að hárið gráni. • Bíótín tekur t.d. þátt í myndun kreatíns og hindrar að hárið gráni. Skortur á bíótíni getur leitt til hárloss. • B12 vítamín hindrar hárlos og viðheldur hárvexti og formgerð tauga. • D vítamín er mikilvægt næringarefni fyrir fitukirtilinn sem færir hársrótinni næringu. Ef virkni fitukirtlanna minnkar dregur úr hárvexti, hárið verður stökkarar og það losnar að lokum. • E vítamín eflir blóðflæði í hársverðinum en það er nauðsynlegt fyrir hárvöxtinn og færir hárinu fullnægjandi næringu. • Sink gegnir mikilvægu hlutverki við myndun hársekkjanna. Sink kemur auk þess í veg fyrir hárlos. • Metíónín hefur ýmis verkefni, t.d. það að örva kreatínmyndun.

Notkun

1 hylki á dag. Ekki er mælt með efninu fyrir ófrískar konur. Án laktósa, gers, sætuefna og glúten.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Birkiaska

Innihaldslýsing

Akurdoðrufræjaolía, hlaupefni (hylkisskelin, nautgripagel), sojaolía, hörfræjaolía, rakagefandi glýseról*, grikkjasmárafræjaolía, L-metónín, sinkglúkonat, paraamínóbensósýra, níkotínamíð, D-alfatókóferýl, sojalesitín, járnfúmerat, kalsínpantótenat, járnoxíðlitur*, pýridoxínhýdróklóríð, B12 vítamín, þíamínvetnisklóríð, ríbóflavín, kólekalsíferól, C-bíótín * hylkisskelin

1 hylki inniheldur: Akurdoðrufræjaolíu 300 mg Hörfræjaolíu 150 mg Grikkjasmárafræjaolíu 100 mg L-metónín 100 mg Sink 7,5 mg Paraamínóbensósýru 20 mg Nikotínamíð 18 mg E-vítamín 10 mg Pantótenatsýra (B5) 4 mg B6 vítamín 2,2 mg B12 vítamín 3 μg B1 vítamín 1,4 mg B2 vítamín 1,6 mg D3 vítamín 10 μg Bíótín 60 μg