
Vöruupplýsingar
D3-vítamín er oft kallað sólarvítamín vegna þess að húðin þarfnast sólargeisla til að framleiða D3-vítamín sjálft í líkamanum. D3-vítamín er í raun ekki síður mikilvægt beinheilsunni en Kalk því að við þurfum D3-vítamín til að taka upp Kalkið og nýta það rétt. D3-vítamín kemur víða við í líkamanum og spilar einnig mikilvæg hlutverk í heilbrigði ónæmiskerfis, hjarta og æðakerfis, heila og taugakerfis svo eitthvað sé nefnt.
Notkun
2-4 töflur á dag.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Heilsa
Innihaldslýsing
Innihald í 1 töflu: Kalk (sítrat) 250mg, D3 vítamín (cholecalciferol) 50AE/1,25mcg.
Önnur innihaldsefni: Örkristallaður sellulósi (microcrystalline cellulose), croscarmellose sodium, ein- og tvíglýseríð (mono and diglycerides), shellac, kísildíoxíð, magnesíum sterat, talkúm.
Inniheldur fisk.