Vítamín
Liðir og bein
SOLARAY K-2 Menaquinone 30stk
K2 er fituleysanlegt vítamín sem stuðlar að góðri beinheilsu og beinþéttni. Einnig hefur komið í ljós að það er talið vinna á móti hjartasjúkdómum og ákveðnum tegundum krabbameins og þá sérstaklega í blöðruhálskyrtli. Einnig hefur það góð áhrif á húð, heila og taugavef.
2.598 kr.
Vöruupplýsingar
Á síðustu misserum hafa sjónir manna beinst í síauknum mæli að K2 vítamíninu.
Ástæða þess er fyrst og fremst sú að ýmsar nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að K2 hefur mikil og góð áhrif á hin ýmsu líkamskerfi.
Líklega höfum við stórlega vanmetið þátt þess í góðri beinheilsu og beinþéttni, en einnig hefur komið í ljós að það er talið vinna á móti hjartasjúkdómum og ákveðnum tegundum krabbameins og þá sérstaklega í blöðruhálskyrtli. Einnig hefur það góð áhrif á húð, heila og taugavef.
Heilbrigð þarmaflóra mannslíkamans myndar K2 vítamín og lengi vel vildu margir meina að þar myndaðist nægilegt magn fyrir líkamann. Nú deila menn um þetta, þar sem framleiðslan virðist vera takmörkuð. K2 fáum við einnig úr eggjum, osti og öðrum mjólkurmat, natto (gerjaðri soya afurð) sem og kjöti.
Það getur verið góð hugmynd að taka inn auka K2 vítamín, sérstaklega ef viðkomandi er í áhættuhóp varðandi beinþynningu.
K2, kalk, magnesíum og D vítamín vinna vel saman og stuðla að góðri beinþéttni.
Ef tekið er inn auka K vítamín þá geta þau dregið úr virkni blóðþynnandi lyfja.
Notkun
Eitt hylki á dag með mat eða vatnsglasi.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Heilsa
Innihaldslýsing
Eucalyptus* (26%), lakkrís*, engifer*, basil*(6%), kardimommur*, kanill*, mullein*, alfalfa*, fennel*, garðablóðberg*(3%), inula*, vanillu þykkni, negull*, svartur pipar*, vanillu stöng*.