Vítamín
B-vítamín
SOLARAY Mega B Stress 120stk
Frábær B vítamín blanda, sem inniheldur að auki C vítamín og magnesíum. Sannkallað fóður fyrir taugakerfið og nauðsynlegur bakhjarl gegn streitu og álagi. Einnig frábært fyrir hár, húð og neglur. Þetta eru forðahylki og líkaminn fær skammtinn jafnt og þétt í 12 klst.
4.198 kr.
Vöruupplýsingar
B vítamínin eru fjölmörg og hér eru þau öll samankomin í öflugum skömmtum. Þau virka best öll saman og ekki skemmir að þessi blanda inniheldur einnig C vítamín og magnesíum. Það er mikill kostur að vatnsleysanleg vítamín séu í forðahylkjum, því annars losar líkaminn sig strax við þann umframskammt sem hann nýtir ekki. Með forðahylki þá er klárt að vítamínin nýtast mun betur.
Notkun
Þrjú hylki daglega með mat eða vatnsglasi.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Heilsa
Innihaldslýsing
Vitamin C, Thiamine, Riboflavin, Niacin, Vitamin B-6, Folic Acid, Vitamin B-12, Biotin, Pantothenic Acid, Choline, Inositol, Bioflavonoid Concentrate, PABA (Para-Aminobenzoic Acid)