
Vítamín
Háls, nef og eyru
ICEHERBS Hálsmixtúra Sítróna & Engifer 200ml
Fjallagrasa hóstamixtúran með engifer og sítrónu vinnur gegn særindum í hálsi.
1.798 kr.
Vöruupplýsingar
Vegna fjallagrasanna inniheldur mixtúran fjölsykrur sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar.
Fjallagrasa hóstamixtúran inniheldur mjög hátt hlutfall af fjallagrösum sem tryggir mikla virkni þeirra eins og í öðrum fjallagrasa hálsmixtúrunum.
Fjallagrös innihalda leysanlegar trefjar, lichenin, isolichenin og fléttusýrur sem mýkja slímhúð í hálsi. Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran mentól og lakkrís sem eru þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
Þessi mixtúra inniheldur alkóhól og henta því ekki börnum.
Fjallagrasamixtúrnar eru góð vörn gegn hósta og hvers konar óþægindum í hálsi, því mixtúrurnar innihalda fjallagrös sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi. Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.
Notkun
1 matskeið 2-3 sinnum á dag fyrir fullorðna. Ekki ætlað börnum. Hristist fyrir notkun.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Iceherbs
Innihaldslýsing
Vatn, maltitólsýróp, glúkósasýróp, fjallagrasaþykkni etanól, pektín, bragðefni, engifer og sítróna.