Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Svefn

Nordaid Sleep Aid Munnúði Melatonin 1mg 200sk

Sleep Aid munnúðinn getur hjálpað þeim sem eiga erfitt með að festa svefn og fá góðan nætursvefn. Munnúði nýtist líkamanum allt að 50% betur en hefðbundnar töflur og hylki. 200 dagskammtar - 30 ml - Vegan - Aðeins fyrir fullorðna. Þegar munnúðinn er notaður í fyrsta skipti er gott að ýta nokkrum sinnum á úðahausinn til að fá vökvann upp í rörið. Hristið glasið fyrir notkun. Úðið undir tunguna eða innan á kinnina. Munið að setja hettuna á úðahausinn og geymið flöskuna þannig hún standi lóðrétt. Ef munnúðinn er ekki notaður í langan tíma, þá getur hann stíflast. Ef það gerist þá þarf að hreinsa úðahausinn með heitu vatni.

2.798 kr.

Vöruupplýsingar

Bragðgóður munnúði sem frásogast og nýtist hratt og vel. • Einfalt og þæginlegt • 200 dagskammtar - 30 ml • Vegan • Aðeins fyrir fullorðna Góður svefn er nauðsynlegur þáttur í lífi allra einstaklinga og ekki síst mikilvægur til að viðhalda eðlilegri líkamstarfsemi og góðri heilsu. Ef við fáum ekki nægan svefn getur það valdið vanlíðan og aukið hættu á ýmsum kvillum sérstaklega ef um langvarandi svefnleysi er að ræða. Ástæður svefntruflana geta verið af ýmsum ástæðum. Einstaklingar geta verið að glíma við tímabundið eða langvarandi svefnleysi. Tímabundið svefnleysi getur verið af völdum t.d álags, sjúkdóma, verkja, kvíða eða áhyggja eða vegna vaktavinnu, ferðalaga og eða breytinga á lífsmunstri. Svefntruflanir aukast með aldrinum og eru algengar meðal kvenna á breytingaskeiði. Sleep Aid er fyrir þá einstaklinga sem eiga í vandræðum með að festa svefn og eða þá sem oft vakna yfir nóttina eða með svefntruflanir. Melatónín dregur úr tíma til að sofna. Gagnleg áhrif koma fram þegar 1 mg af melatóníni er neytt rétt fyrir svefn. Þeir sem ferðast mikið finna gjarnan fyrir að svefnmynstur raskast. Til að fá fram jákvæð áhrif þarf lágmarksinntaka að vera 0,5 mg skömmu fyrir svefntíma á fyrsta degi ferðalags og nokkra næstu daga eftir að komið er til áfangastaðar. • Melatónín stuðlar að því að draga úr þeim tíma sem þarf til að sofna • Melatónín stuðlar að því að draga úr huglægri flugþreytutilfinningu. Munnúðinn nýtist líkamanum allt að 50% betur en hefðbundnar töflur og hylki, þar sem innihaldið frásogast beint í gegnum slímhúð munnhols og út í blóðrásina. Fæðubótarefni kemur aldrei í staðinn fyrir fjölbreytt og gott mataræði. Varist að nota ekki meira en ráðlagður dagskammtur segir til. Geymist við stofuhita og ekki í sólarljósi.

Notkun

Einn úði fyrir svefn undir tungu eða innan á kinnina. Einn úði inniheldur 1 mg af melatónín. Aðeins fyrir fullorðna einstaklinga.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Avita ehf

Innihaldslýsing

2 mg. Melatónin - Að auki: Hreinsað vatn, glýseról, sítrónusafi, etanól, melatónín, svevía, akasíu gúmmí, xanthan gúmmí, piparmyndu og appelsínu ilmkjarnaolíur. Er laktósa, glútein frítt og Vegan.